Auður og Hafrún

Brostu og þú færð bros á móti

12.09.2008 22:17:04 / -hala-

Benjamín, Stine og Eva á leiðinni til Íslands

Halló Halló!!
Þessi síða er sennilega steindauð þar sem við stöllurnar erum nú komnar heim aftur og byrjaðar aftur. Ég er samt nokkuð viss um að Hafrún sé sammála um að við söknum nú afslöpunni sem var í UHR í staðinn fyrir stressið og allanlærdóminn í FG 8| 
    Enn nýjustu fréttirnar í dag eru þær að tvær bestu vinkonurnar frá UHR og Benjamín minn eru að koma þann 11. oktober. Stelpurnar ætla að ver hjá okkur í 5 daga og fara heim þann 16. okt, en Benjamin verður hjá mér í 2 vikur. :haha: Við erum hreynlega að deyja úr spenningi :!::!::!: Og við vonum að það gefi okkur einhverja spennu fyrir alla vinnuna í FG og Hagkaup vinnuna hjá Hafrúnu og Þjóðleikhúið fyrir mér....... Enn við ætlum að reyna taka myndir (vona ég).....


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.07.2008 13:58:38 / -hala-

Komnar á Klakann

jæjjju kæru ættingjar og vinir.....

við erum komnar heim :haha::cry:
það er bæði ótrúlega gaman og leiðinlegt :)

enn ég ætla ekkert að hafa langt blogg hérna..... bara að segja ykkur ef þið vitið það ekki nú þegar að við erum komnar heim ;) komum heim fyrir rúmlega viku heheh ;)

blessbless og eigið gott sumar ;** :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 08:26:08 / -hala-

vid erum ad koma!!!!

hæhæ kæru vinir, vid hofum ekki verid ofbodslega duglegar ad blogga sidustu daga :/ enn vid hofum bara verid a fullu ad njota sidustu daganna thvi ad VID ERUM AD KOMA HEIM A MORGUN!!!!! :)

SJAUMST
kvedjur
Hafrun og Audur

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 13:10:21 / -hala-

Vel heppnaður Galadagur =)

Já góðann daginn kæru vinir og ættingjar....

eins og hér fyrir ofan stóð þá var gala partý í gær og var það eitt af skemmtilegustu partýiunum sem hefur verið að haldið hér.. það var flest allir ótrúlega ánægðir og í sínu fínustu dressum :D

ég veit nú ekki hvað við getum skrifað um þennan dag nema að við fengum kennslu í dansi og strákarnir fengu kennslu hjá skólastjóranum hvernig er að vera Herramaður og var það mjög áhugavert að hlusta á þá ræðu ;)

svo eftir það var farið að gera sig til og allir að gera sig ótrúlega sæta

svo var fordrykkur í forstofunni áður en haldið var til matar. í kvöldmat var í forétt túnfiskbaka með rækjum :!: í aðalrétt var Nautakjöt, kartöflur, bernies sósa og gott salat :D í eftirrétt var ískaka, Brownies og ótrúlega flottur ávaxta bakki :haha:

eftir matinn var dansað og svo tekin mynd af öllum strákum saman og öllum stelpum saman og svo teknar myndir af öllum pörunum.

eftir að það allt var búið voru sagðar niðurstöðurnar úr UHR kosningunum....og til dæmis voru Auður og Benjamin númer 2 af pari ársins, Auður var kosin Söngvari UHR, Mirra höslarinn og Árni besti Teiknarinn og að lokum var ég kosin Mamma UHR :!:

þannig að við allir íslendingarnir fengu einhverja viðurkenningu enn á mjög fjölbreyttum sviðum ;)




Þeirra á ég eftir að sakna mikið :* Stine dk, Dominika Slóvak, Marti Ungverjaland :****


Jæjja þá er þetta komið ;)
það fer að styttast ótrúlega í heimkomu vá hvað mér hlakkar mikið til ;D og mamma og Sigrún að fara að koma í heimsókn og taka dót fyrir okkur, get ekki heldur beðið eftir því :D
enn þangað til næst, vona ég að þið verðið dugleg að kvitta ;)
Kærar kveðjur Hafrún Lilja :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2008 16:34:05 / -hala-

sól, hiti,vantstríð,söngur,fatasaumur og fjör

jámm eins og ég sagði hér fyrir ofan þá er það Sól,hiti,vatnstríð,söngur,fatasaumur og fjör sem einkennir okkur þessa dagana!

það er búið að vera óskaplega heitt en þó vindur sem held ég heldur mér á lífi! ég og Auður erum báðar í kennslustofum á daginn sem er varla líft inni á sumrin :!: þannig að hitinn er stundum að gera okkur erfitt þegar við erum að reyna að gera verkefnin okkar þ.a.s ég að gera gala kjól og Auður að syngja :D

í gær laugardag fór ég með Marti frá Ungverjalandi að sjónum þar sem við vorum að vaða í sjónum og sprikla, svo fór Marti og ég var eftir og lá í sólinni ósköp þægilegt....
og þegar það nálgaðist kvöldmat var ákveðið að snæða matinn utandyra :!: því miður gat Auður ekki verið með úti vegna oðnæmisins sem er ekki gott þessa dagana...enn það var ósköp notalegt, við settum helling af borðum og stólum út og borðuðum  : )

í Dag Sunnudag lá ég í sólbaði með Rannvá og Elsu frá Færeyjum...við vorum að steikjast og fórum og keyptum okkur ís :D þegar komið var til baka láum við aðeins lengur enn vorum gegnsteiktar :!: eftir það var farið í þvílíka vatnstríðið það var æðislegt í góða veðrinu..... mjög kallt vatn var notað og það var sko ekki sparað takk fyrir :!: eftir einhvern tíma í æðislegu skemtilegu vatnstríði hljóp ég inn í herbergi til að ná í þurr föt og inn í sturtu.... eftir nokkrar mínútur kom heil strolla inn á bað og tveir strákar sitthvoru megin við mig í sturtubásunum og eftir nokkar sek var farið að sulla vatni á milli og sungið og sparkað í veggina og vatnið var kom allstaðar frá þannig að þurru fötin voru ekkert sérstaklega þurr eftir það enn þetta var mjög skemmtileg sturtuferð ;)

enn núna er ég gjörsamlega uppgefin af öllu fjörinu ; ) enn þetta er búið að vera gaman í dag : )
svo styttist bara í heimkomu :!: jáhá það er ekki langt í það held ég bara um 28.dagar :D þannig að við erum farnar að huga að flutningi og það er eiginlega of flókið fyrir minn heila :!: held að ég fari bara bráðum að byrja að pakka ;) hahah
enn þangað til næst: þá vona ég að þið getið kvittað! það hefur ekki verið mikið gert hér síðustu daga : /
kærar kveðjur Hafrún Lilja og Auður Ásta :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 11:10:18 / -hala-

Loksins Loksins

Loksins drífðum við í því að blogga hérna. Það vill svo til að að er bara ekkert betra að gera. Nú er klukkutími í tíma og ekkert betra að gera. Einhver rappari að koma í heimsókn og sennilega ætlar hann að rappa fyrir okkur. Við erum nú ekkert svo mikið í tölvonum þessa dagana enda ´fullt búið að vera í gangi og þessu tímabili að ljúka og verkefni að klára....þ.e.a.s að Hafrúnar hálfu. Ég held bara áfram í söngnum og söng lög eftir aðrar stelpur í skólanum í endann.  Nú byrjar Hafrún í GalaGalaGala og saumar meira og ég held áfram í Musictour.

Enn hvað með það. Sl. mánudagur var kennarafunda dagur og komu 4 íþróttaskólakennaranemar og áttu góðan dag með okkur. Fyrst bjóst ég alveg við því að það yrði bara típískir leikjir eins og fótbolti og svona eins og í íþróttum enn svo vildi til að þetta var alltblandað með rökhugsun og hreyfingu. Fyrri hluti var hreyfi gerð af mastermind og seinni hluti var stöðvaleikur. Dagurinn endaði svo með fieldleik þar sem við kepptum á móti hvor öðru og áttum að skjóta hvort annað niður og ná í spaðann hinumegin á völlinum og koma honum yfir til okkar.
    Á Föstudaginn skelltum við svo okkur í hjólatúr við 2 og Gorri girafi fékk að koma með.
Á þriðjudeginum sl. kom skólaráðið og við sungum saman, leiklistin lék leikrit sem var frábært, svo fengum við ansi gott kvöldkaffi.
    Miðvikudagsvöldið kom svo  Komplex affair sem er hópur sem spilar, dansar og málar saman og tókum við átt með að horfa á og eiga ágætt kvöld saman.

Þá er þetta allt það helsta. Hafrún er búin að gera meira leður og er nú að klára það og svo einnig búin að breita 3 pörum af skóm.

Þá segji ég bara bless í bili o sila hér með kveðju frá Hafrúnu ;)

og ef þið eruð búíin að gleyma hvernig við lítum út þá er mynd af okkur hér ;):!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 18:53:57 / -hala-

Sól Sól skín á okkur

Við erum enn lifandi :lol: og......
Já það er sko alveg satt að sólin skín á okkur út allann daginn sl. 5 daga. Alveg einsog hásumar á Íslandi. Annað er ekki mikið að frétta af okkur hérna í Danaveldinu. Við steikjumst inni í stofunum þ.e.a.s ef við getum ekki tekið vinnunna með út eins og Hafrún gerði í dag. Ég Auður er orðin svo skemmtilega bleik á litinn eftir daginn í dag þrátt fyrir að hafa bara verið í inni fögum 8) ekki verra. Enn hnerra svo af og til vegna frjóofnæmis og gras.....
Dagurinn byrjaði svo skemmtilega í dag í Erobiktíma en var ekki erobik heldur bara eins og venjulegur íþróttatími enn vill svo til að hann var bara ansi góður með 8 mismunandi stöðvum og eftir hverja stöð áttum við að skrá á töfluna hvað mikið við afrökuðum. Satt að segja var ég bara asni ánægð með afreksturinn minn þrátt fyrir að ég hefði getað gert betur.


Hafrún heldur áfram að gefa gömlumskóm nýtt líf og gera meira leðurdót og ég geri ekki neitt annað enn að syngja og liggja í sólbaði á meðan með ofnæmi.

Bless á meðan
Stelpurnar ykkar

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 10:06:26 / -hala-

Nýtt tímabil byrjað....

Góðann daginn allir !!
Nú er löng helgi hjá okkur :haha: Hafrún skrapp í Hönnunnarherbergið einsog það heitir á góðri íslensku og ég sit ´nú bara að býða eftir þvottavélonum sem við fylltum fyrir stuttu ;). Enn hvað með það í fyrramálið þurfum við að vakna svo stundvíslega um 5 og labba yfir til Mando. Þegar þangað er komið fáum við svo "hádegismat" um 9. Eftir það verðum við svo keyrð heim og fáum frjálsan tíma eftir það. Þetta er svona það mest frá sagnalegasta um helgina því annars eru bara kósý helgi frammundan með litlu sem engu plani.

Eftir ferðirnar í skólanum byrjaði nýtt tímabil. A- fag fékk ég (Auður) Musictour og er það sama og verður í næstatæimabili fyrir mig. Er mjög ánægð með að hafa fengið það og var víst ansi heppin. Margir reindu að komast í það enn fengu það ekki. Hafrún fékk aftur á móti Skóhönnun. Þar sem þau breyta gömlum skóm og svo eitthvað að gera líka með boli. B-fag fékk ég aftur samspil og syng þar með öðru fólki fleirri lög. Hafrún fékk líka aftur leður og heldur sínu áfram. Í C fagi erum við svo saman í erobiki og svittnum þar saman.

Við erum ansi ánægðar því við fengum báðar það sem við vildum í loka tímabilinu. Hafrún fer í Gala-hönnunn og ég held áfram í Musictour.  Ég mun svo sennilega fara í 4 daga ferð enn það er víst eitthvað vesen með það því það stefnir á að vera svo seint í Jún að margir skólar eru lokaðir þá.

Enn þá kveð ég bara að sinni ;)
Auður Ásta......


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 18:54:47 / -hala-

Komnar heim :)

jæjja kæru vinir þá erum við komnar til Danmerkur again :)

ferðin í heildina gekk mjög vel fyrir utan smá klikk í byrjun sem varð til að við mistum næstum því af skipinu til Englands enn það var rútufyrirtækið sem gleimdi okkur...enn það reddaðist á endanum og við komumst af stað fyrir rest :D

í London fórum við í þó nokkur listasöfn og já BÚÐIR ;)

við tókum því samt ansi rólega og ekkert djammað ;) við 5 sem voru saman í herbergi vorum svo uppgefnar eftir daginn þannig að við voru svo stilltar og förum snemma í háttinn.... þvílíkt og annað eins ;)

annars er lítið að segja frá ferðinni nema við stöllur keyptum hvor 3 skópör og erum skom stolltar af því :haha: svo nokkar fata tuskur og dvd myndir :haha:



Auður og Stine sætar saman á bátnum sem við fórum á ;)


Við sem fórum að skoða design skólann, þið ættuð að þekkja okkur hérna  :)


ég og Stine á picadella scare þreyttar eftir allt búðar-rápið :)

Dia og Marti frá Ungverjalandi sem voru herbergisfélagar okkar alla ferðina ásamt Stine :)

og að lokum ég Hafrún, við bleikt tré í Hyde park :) heillaðist allveg af þessu sæta tré-i langar svona í garðinn minn 8) MAMMA!!! plííííís ;)


en þá held ég að þetta sé svona sæmilegt blogg....
þangað til þá segji ég bara blessbless fyrir hönd okkar Auðar :)
-Hafrún Lilja


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 11:49:06 / -hala-

blessbless

jæjja tha segjum vid bless ï bili :)

vid leggjum af stad frä skolanum eftir 3.klst enn eigum ad vera allveg tilbuin klst... enn vid erum svona nokkurvegin tilbunar ;)

vid bloggum tegar vid komum heim aftur, tangad til, hafid thad gott

kærar kvedjur
Hafrun Lilja og Audur Asta


ps.er bara med danskt lyklabord nuna :S

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 09:25:45 / -hala-

Dagskráin í London !!!

Þá erm við búnar að fá dagskránna fyrir vikuna í London 8) og hún er svona :

Ferðin hefst á Laugardaginn og leggjum við í hann héðan frá skólanum kl. 17.
Kl. 18 Um borð í Dfds ferju sem er svipuð og Herjólfur sem er við Esbjerg
Ferðin tekur svo um 18 tíma og verðum við komin í Harwich um kl. 11 á Sunnudags morgunn. Tökum þaðan lest til London og ættum að vera komin á hótelin sem eru 2 um 14. Þá fáum við tíma til að koma okkur fyrir og sona þangað til kl 16.30 þegar við ætlum að fara og skoða  Seakers Corner in Hyde Park. Eftir það erum við svo laus restina af kvöldinu.

Mánudagur:

7.30-9 Morgunmatur á hótelinu
9 - 14 Skoðunarferð um  Kensington Gardens að suður Kensington söfnum sem við getum valið úr söfnum sem við viljum skoða: Science Museum, Natural History Museum og Victoria og Albert Museum. Eftir það förum við svo að Thames fljótinu og förum yfir Millennium Bridge og sjáum Tate Modern.
14 + Frjáls tími

Þriðjudagur:

7.30 - 9 Morgunmatur
9-14     Skoðunarferð með báti um Thames frá Big Ben til Tower og ferð til Comden í norðurhluta London
14+ Frjálsar

Miðvikudagur:

7.30- 9  Morgunmatur
9 - 14  Förum við stöllurnar ásamt fögru föruneiti að skoða Designacademy Saint Martins
Þar eftir erum við lausar eins og alltaf

Fimmtudagur:

7.30 - 9 Morgunmatur
9 - 13 Safnaferð getum valið milli þriggja safna. Imperial War Museum, British Museum eða Fashion- og Textile Museum
18.00 Förum á Söngleikinn Blood Brothers.......

Föstudagur:
7.30 - 9 Morgunmatur
10  Verðum að vera komin út úr herbergjunum
14 Hittumst á Hæotelunum og náum í töskur og tökum lestina til Harwich
16.43 komum við í Harwich og leggjum í hann til baka til DK.

Laugardagur:
8 - 11.30 Morgunmatur í ferjunni
13 Leggjum að bryggjunni og rútan keyrir okkur heim í skólann

20 + Partý í SKólanum

Jæjja þetta er þá dagskráin frammundan næstu daga. Krítar fólkið leggur svo í hann dag og þá fáum við frí á meðan. Kannski gerum við kveðjublogg áðurenn við förum enn ef ekki þá verður ekkert fyrr enn á sunnudaginn 27. ef þið verðið heppin 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 18:21:37 / -hala-

Kajakferð

Gott kvöld fólk eða dag eða hvað sem maður ætti að segja........8|

Er sumarið komið hjá ykkur ? Haha hélt ekki.......
Það er sko komið hjá okkur :!::!:
Síðastliðnu daga erum við sko búnar að njóta þess. Mánudaginn fyrir viku hjóluðum við í búðina eftir tímana og nutum þessa að vera bara á peysunni og á langermabolnum á endanum. Sólin er búin að vera mikið hjá okkur þótt það sé kannski ekki beint tanveður ef þú skilur hvað ég meina ;)
Um helgina skelltum við okkur til Ribe og viti menn við hjóluðum þangað í rólegheitunum og tókum Benjamín kallinn með sem fór á línuskautum og við vorum ansi hissa hvernig hann færi að á þessum léleguvegum á leiðinni og hvað þá að hann gerði þetta oft á viku og leiðin framm og til baka er u.þ.b 19 km
Í dag skelltum við okkur í göngutúr og enduðum í kirkjugaðinum og dáðumst að hvað hann var fallegur þangað til kirkjuklukkurnar fóru að hringja og ýmindunaraflið fór að leika við okkur og við fórum bara í burtu. Enda hlógum við annsi mikið þegar klukkurnar hættu að hringja þegar við lokuðum hliðinu en byrjuðu svo að hringja hægar þegar við löbbuðum í burtu...... 
        Í gær skelltum við okkur í roadtrip með Jens Martin, Benjamín, Thomas, Chillu, Regin og gestakennaranum Michael. Fórum til Kolding á fyrirlestur með þýskrikonu sem var fyrsta konan til að fara ein á kajak hringin um Nýja sjáland. Enn á undan var hún með smá leiðsögn um að snúasér á Kajaknum og fóru Regin, Jens MArtin og Michael útí að prófa, enn við hin skemmtum okkur og tókum myndir á bakkanum. Við skemmtum okkur stórkostlega þótt að við bjuggumst við að við hefðum getað farið meira á Kajakana. Hafrún skellti sér þó í nokkrar mín útí.
      Enn ÞAÐ ERU KOMNAR MYNDIR Í MYNDASAFNIÐ njótið vel þótt þið þekkið ekki mikið af því enn kennarinn er um talaður hottie.........
Kveðjum að sinni

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 09:02:08 / -hala-

hvad siger du?

 

Halló halló

ég veit ekkert hvað ég á að skrifa hérna :( einhverjar hugmyndir ???

8.dagar í LONDON ;) jeijj... ég og Auður fáum væntanlega að skoða Design skóla...mér var nú ekki sagt hvað hann heitir :S enn er víst einn af flottustu skólanum í Evrópu....:) þannig að þá verð ég búin að sjá 2 af flottustu skólunum í evrópu :D einn í Svíþjóð og annar í London víjjjjj

Annars er ekkert nýtt hér að frétta eins og vanalega...:)

Svo er verið að setja saman hópa hérna sem ætla að fara á tónleika í 14.júní eða semsagt ,,festival" og til dæmis verður ase of base þar 8| ógeðslega COOL og langar miiig mikið að fara með öllum krökkunum og mikið fjör nokkrum dögum áður enn við hættum í skólanum....ennn málið er bara að það er einhver 450 kall danskar á tónleikanna! þannig að ;) ég veit ekki hvort maður fer..kannski, kannski ekki ;)

og Svo ætla krakkarnir líka að fara saman á Roskilde festival....enn ég og Auður förum til Íslands sama dag og hátíðin byrjar :S :D

þannig að já gaman af þessu :)
enn það eru komnar nýjarmyndir í Albúmið og fyrir þá sem eru með myspace þá eru komnar hátt í 200.stykki af myndum og var það sett í gær og í fyrradag

enn jæjja ég ætla að hætta þessu bulli og blaðri
-Hafrún Lilja


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2008 15:41:26 / -hala-

Helgin búin !!

Þá er stóra helgin búin og allt orðið rólegt. Hún byrjaði með pompi og prakt á föstudagin þegar flestir komu í skólan og var ansi skrýtið að sjá svona mikið líf í skólanum. Hvert sem maður fór var mikið af fólki. Dagskráin var skemmtileg og byrjaði með kynningu og söng inní fyrirlestrarsalnum. Eftir það fengum við að borða og var salurinn troðin af fólki. Workshopin byrjuðu svo eftir það og fór ég í Línudans þar sem við lærðum 2 dansa á einu kvöldi ótrúlega duglegar !! Hafrún fór í word and sweat shop þar bjó hún til geggjað lag með hópnum sínum. Á laugardeginum fórum við svo 2x í hópana okkar og sýndum svo hvað við höfðum verið að gera yfir helgina um kvöldið. ( Það koma myndir fljótlega). Helgin var mjög góð og viðburðarrík. Partýi helgarinnar var mjög stórt enda var hljómsveit sem kom og spilaði fyrir okkur.

Þá var það bara ekki meira eða annað en að við reinum að henda inn myndunum sem fyrst ;)
Nú eru 12 dagar í að við förum til London og erum við að sjálfsögðu mjög spenntar :)

Bless í bili
KV Auður Ásta

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 23:24:54 / -hala-

Myndir og smá blogg :)

hæhæ ákvað að setja ,,hár myndir" af ósk Söndru og fleirra :) ;)


úti í góðu íslensku lopapeysunni :) gerir sitt gagn þessi elska ;* :O)




stelpurnar að taka myndir :)

ég fyrir allar breytingarnar :) ég sakna hársins míns hahah

Enn jæjja annars er allt gott að frétta af okkur hérna :) partý á Laugardaginn þannig að aldrei að vita ef myndavélin komi með ;) ég er samt svoooo löt alltof löt að setja myndir hérna inn :/ alltof mikið vesen... er með troðfulla tölvu af myndum enn ekki smá partur af því inn á netinu :/ þannig að þið verðið bara að bíða spennt að sjá það þegar við komum heim eftir 80 og eikkað daga :$ enn skal reyna að vera duglegri að setja nýrri myndir þangað til :D

enn svo erum við búnar að skipta yfir í sumartíma þannig að við erum 2 tímum á undan ykkur Þannig að nú er ég að blogga klukkan hálf 2 um nóttina hjá mér enn hún er hálf 12 hjá ykkur :)
 
enn jámm jámm ég ætla að fara að sofa var búin að segja góða nótt við alla fyrir 3 klukkutímum síðan :$
good night ;*
-Hafrún- Kvitt takk fyrir ef þið vilduð vera svo væn :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 9719
RSS tengill
Könnun
Langar þig út að læra meira?
4 atkvæði

nei
0 atkvæði

kannski
1 atkvæði

mundi sakna mömmu of mikið
2 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 7
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1056 dögum
Benjamin